Keila

Keiluhöllin í Egilshöll er einn glæsilegasti keilusalur í Evrópu, og þó víðar væri leitað. Boðið er upp á 22 keilubrautir af fullkomnustu gerð. Hvort sem þú ert að koma í keilu með vinunum eða með alla fjölskylduna þá er Keiluhöllin í Egilshöll staðurinn fyrir þig.

Bóka braut

Hópar

Hvort sem þú ert að koma í keilu með vinunum eða með alla fjölskylduna þá er Keiluhöllin í Egilshöll staðurinn fyrir þig.

Bóka þarf með tölvupósti á keiluhollin@keiluhollin.is milli kl. 8-16 virka daga. Utan þess tíma er best að hringja í síma 511 5300.

Eftir kl. 22:00 á föstudögum og laugardögum er 18 ára aldurstakmark í keilu. Einstaklingar undir 18 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamanni.

Friends enjoying a game at Keiluhöllin

Reglur keilunnar

Keilurnar eru tíu og er þeim raðað upp eftir ákveðnum reglum. Leikurinn felst í að fella sem flestar keilur og til þess fær leikmaður tvö skot í hverri umferð. Þessi tvö skot kallast einn rammi og eru tíu rammar einn heill leikur.

X

Fella

Allar tíu keilurnar falla í fyrsta skoti og þá kemur merkið X á stigatöfluna.

/

Feykja

Keilurnar sem eftir standa eftir fyrsta skotið kallast leifar. Fellirðu þær allar í seinna skotinu kemur merkið / á stigatöfluna.

10

Tíundi rammi

Í tíunda og síðasta ramma fær leikmaður tvö aukaskot fyrir fellu og eitt fyrir feykju.

Bowling lanes at Keiluhöllin

Atrennan í fjórum skrefum

Algengast er að nota fjögur skref í atrennu. Rétthentur leikmaður stígur fyrst fram í hægri fót og endar á að renna sér fram á vinstri fæti um leið og hann skýtur kúlunni með hægri hendi. Örvhentir gera hið gagnstæða.

///Línan sem skilur að stigbrautina og keilubrautina kallast refsilína. Ef leikmaður stígur á línuna er kastið ógilt, hann fær F á stigatöfluna og þar með núll stig.

Góðir siðir í keilu

Keila er skemmtilegri þegar allir eru til friðs. Sex einfaldar reglur halda leiknum gangandi, fyrir þig og fyrir næstu braut.

  1. 01

    Ekki má fara á útiskóm niður í gryfjuna (leiksvæðið) og passa þarf upp á að ekki komi bleyta undir keiluskóna.

  2. 02

    Ekki skjóta keilukúlunni fyrr en keiluvélin er komin upp og keilurnar standa þér opnar. Vélbúnaðurinn getur eyðilagst við þungt högg keilukúlunnar.

  3. 03

    Haltu þig á eigin braut og ekki fara yfir á brautir annarra leikmanna.

  4. 04

    Ef leikmaður er að fara að skjóta á brautinni við hliðina á þér, leyfðu honum að klára skotið áður en þú skýtur. Ekki þarf að bíða eftir leikmönnum sem eru nokkrum brautum frá þér.

  5. 05

    Gefðu öllum fimmu sem ná feykju eða fellu.

  6. 06

    Ekki dansa á brautinni, dansaðu við sófana.

Staðsetning

Egilshöll, 112 Reykjavík

Opnunartími
Mán11:30 - 21:00
Þrið11:30 - 21:00
Mið11:30 - 21:00
Fim11:30 - 21:00
Föst11:30 - 21:00
Lau11:30 - 21:00
Sun11:30 - 21:00