Barna-afmælispakkinn
Afmælispakkinn
Allt er innifalið: keilan, pizzahlaðborðið og glaðningur fyrir allan hópinn. Þið komið með gestina, og kökuna nema við pöntum hana fyrir ykkur.
Það er 10 barna lágmark, og allir sem bóka afmælispakka hjá Keiluhöllinni fá 20% afslátt hjá Partýlandi í Holtagörðum.
Ferlið
- 01
Mæting hjá afmælisbarni 15 mínútum fyrir boðað afmæli. Í móttökunni er tekið á móti afmælisbarninu, skráningarblöð eru afhent og kökum komið fyrir.
- 02
Afmælisbarnið tekur á móti gestum við móttökusófana og nöfn gestanna eru skrifuð á skráningarblöðin.
- 03
Gestir fara á keilubrautirnar og pizzaveislan er borin fram á brautirnar.
- 04
Eftir keiluleikinn er kakan borin fram, verðlaunaafhending fer fram og afmælissöngurinn sunginn.
- 05
Pakkar eru opnaðir og gestir leystir út með glaðningi. Forráðamenn sækja börnin 60-90 mínútum eftir að afmælið byrjar.
Gott að vita
Nokkur atriði sem gera hvert afmæli einfaldara, fyrir gestina, forráðamennina og brautirnar.
- 01
Barnaafmæli miðast við börn frá 5 ára til 11 ára.
- 02
Það er 10 barna lágmark, sem þýðir að borgað er fyrir fjölda barna sem mæta en þó aldrei fyrir færri en 10 börn.
- 03
Afmælið stendur yfir í 90 mínútur ef pöntuð er kaka, annars um 70 mínútur. Boða skal gesti 20 mínútum fyrir bókaðan tíma.
- 04
Við sjáum um allan borðbúnað: diska, glös, servíettur og hnífapör.
- 05
Við getum pantað afmælisköku frá Tertugallerí Myllunnar og haft hana klára þegar þið mætið (gildir virka daga).
- 06
Ekki má fara á útiskóm niður í gryfjuna (leiksvæðið) og passa þarf upp á að ekki komi bleyta undir keiluskóna.